Fotbolti.net
26.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sér fyrir sér að mæta Roma í úrslitum - „Klárlega erfiðasti andstæðingurinn"

Sér fyrir sér að mæta Roma í úrslitum - „Klárlega erfiðasti andstæðingurinn"
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
PSG og Roma gerðu 2-2 jafntefli í Meistaradeildinni í gær. Mario Hermoso kom Roma yfir en Ilya Zabarnyi jafnaði metin og Ousmane Dembele kom PSG yfir með marki úr vítaspyrnu.

Hinn sjóðheiti Donyell Malen bjargaði stigi fyrir Roma með marki úr vítaspyrnu. Malen hefur skorað 17 mörk í 16 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
PSG hafði unnið 12 leiki í röð fram að leiknum í gær. Luis Enrique hrósaði Roma í hástert eftir leikinn og vonast til að mæta þeim í fyrsta lagi í úrslitaleiknum.

„Þetta var klárlega erfiðasti leikur PSG sem við höfum spilað á þessu tímabili, án nokkurs vafa. Á móti liði Roma sem er í þeim gæðaflokki sem við vissum," sagði Enrique.

„Það er betra að tala um framtíð Roma en ekki PSG. Framtíð Roma er frábær, þeir geta unnið ítölsku deildina. Ég efast ekki um að þeir komist í útsláttakeppnina, ég vona það, ég vil ekki mæta þeim aftur, kannski í úrslitum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.