26.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Basilla til Espanyol. (Staðfest)

Bassila í miðjunni reynir að stöðva leikmann Monaco.


Bassila í miðjunni reynir að stöðva leikmann Monaco.

Eins og við greindum frá fyrr í dag ætlaði Espanyol botnliðið í La Liga að reyna að fá Christian Bassila miðjumann Strasbourg. Nú hefur það tekist því að Bassila mun vera lánaður til Espanyol út þetta tímabil en Spánverjarnir borguðu Strasbourg 300 þúsund evrur fyrir þennan samning. Þá ætlar Espanyol að reyna að fá fleiri menn í janúar og má þar nefna argentíska varnarmanninn Mauricio Pochettino sem spilar með Bordeaux í Frakklandi.
