26.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Huckerby fer til Norwich (Staðfest)




Sóknarmaðurinn Darren Huckerby hefur samþykkt tveggja og hálfs árs samning við Norwich. Huckerby kemur frá Manchester City á um 750 þúsund pund en WBA bauð einnig í kappann. Talið var að hann myndi vera áfram hjá Manchester City en Huckerby tók á sig launalækkun og samdi við Norwich. Kappinn kannast vel við sig þar því að hann var þar í láni í þrjá mánuði í haust og skoraði fimm mörk. Huckerby sagði við þetta tækifæri í dag að honum hlakkaði til að hjálpa Norwich að komast aftur upp í úrvalsdeildina.
