Brasilíumaðurinn Bruno Guimaraes fer í læknisskoðun á morgun og gengur til liðs við Newcastle frá Lyon. Kaupverðið er talið vera í kringum 33 milljónir punda.
Guimaraes er um þessar mundir staddur í Suður Ameríku þar sem hann er í leikmannahópi Brasilíu sem er að spila á móti Ekvador í undankeppni HM.
Læknisskoðunin mun fara fram í Suður Ameríku á morgun.
Guimaraes verður því þriðji leikmaðurinn sem nýju eigendur Newcastle kaupa. Áður komu Kieran Trippier frá Atletico Madrid og Chris Wood frá Burnley.
Athugasemdir