Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vill spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beytt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mán 27. apríl 2026 22:26
Viktor Ingi Valgarðsson
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórðu umferð Bestu Deildar Karla lauk með leikjum í kvöld. Breiðablik fékk Þór í heimsókn á Kópavogsvelli. Leiknum lauk með 4-0 sigri Blika.

Breiðablik eru ennþá taplausir og þriðji leikurinn í röð þar sem liðið heldur hreinu. Ólafur Ingi var til taks eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þór

Fyrir leik liðsins hafði umfjöllunin snúist svolítið um bitlausan sóknarleik liðsins og að leikmenn væru ekki að sýna sínar bestu  hliðar fram á við.

Það hefur verið narrativea þarna úti sem við höfum ekkert verið sammála. Vitum að við erum með frábæra fótbolta menn í öllum stöðum og rúmlega það. Er ánægður fyrir hönd strákana að við náðum að sýna okkar rétta andlit."

Þó að liðið hafi haldið hreinu þurfti Anton Ari markvörður Blika heldur betur að standa sig í dag.

„Anton bjargaði okkur í dag. Við vorum heppnir að lenda ekki undir í dag. VIð erum mjög ánægðir með það að halda hreinu þriðja leikinn í röð."

Einnig hefur verið fjallað um að það vanti sóknarmann í Breiðabliksliðið. Fjórir markaskorar voru í dag og um málið hafði Ólafur Ingi þetta að segja: „Erum ánægðir með hópinn, vitum hvað við höfum hérna og tal utan hópsins truflar okkur ekki neitt. Við sjáum gæðin á hverjum degi á æfingasvæðinu og vitum og treystum að hópurinn kemur til með að skila mörkum, það er klárt."

Framundan hjá Blikum er leikur í Eyjum gegn ÍBV þann 3.maí.

„Geggjað verkefni og alltaf gaman að fara til Eyja."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner