Fotbolti.net
27.07.23 - 10:40
Fótbolti.net

Tíu sem Fram gæti reynt við ef Nonni verður látinn fara

Jón Sveinsson, þjálfari Fram.

Jón Sveinsson, þjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staða Jóns Sveinssonar þjálfara Fram er talin mjög ótraust en stjórn Fram fór á krísufund eftir 4-0 skell gegn Stjörnunni í gær. Reiknað er með þjálfaraskiptum í Úlfarsárdal en fyrstu fréttir voru á þá leið að hann fengi einn leik í viðbót til að bjarga starfinu.

Svo heyrðist það að ákvörðun hefði verið tekin um að skipta um mann í brúnni. Engin tilkynning hefur borist frá Fram.
Fram á leik gegn Fylki þann 8. ágúst svo það er nokkuð langt í næsta leik og stjórn Framarar gæti horft til þess að þetta sé hagstæður tímapunktur fyrir breytingar.

Fram er í fallsæti og hefur tapað fjórum leikjum í röð. Liðið hefur fengið á sig flest mörk allra liða og auk þess ekki skorað í fjórum leikjum í röð.

Ef Fram skiptir um þjálfara er spurning hvaða menn koma til greina, Fótbolti.net tók saman lista yfir tíu þjálfara sem gætu verið á blaði.
<b>Ágúst Gylfason</b> - Veðbankar væru með hann efstan á blaði. Hefur gert góða hluti og það var umdeilt þegar Stjarnan lét hann fara. Ágúst var fyrirliði Fram um aldamótin og var gríðarlega vinsæll leikmaður þar á sínum tíma.

Ágúst Gylfason - Veðbankar væru með hann efstan á blaði. Hefur gert góða hluti og það var umdeilt þegar Stjarnan lét hann fara. Ágúst var fyrirliði Fram um aldamótin og var gríðarlega vinsæll leikmaður þar á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Kristján Guðmundsson</b> - Þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Þessi mikli fótboltaheili gæti verið klár í að snúa aftur í karlaboltann, býr yfir mikilli reynslu og hann kæmi klárlega með nýjar hugmyndir.

Kristján Guðmundsson - Þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Þessi mikli fótboltaheili gæti verið klár í að snúa aftur í karlaboltann, býr yfir mikilli reynslu og hann kæmi klárlega með nýjar hugmyndir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Brynjar Björn Gunnarsson</b> - Hætti sem þjálfari HK til að taka við Örgryte í Svíþjóð á síðasta ári en entist ekki lengi þar. Er ekki í starfi í boltanum sem stendur, hefur getið sér gott orð og er vafalítið til í tuskið.

Brynjar Björn Gunnarsson - Hætti sem þjálfari HK til að taka við Örgryte í Svíþjóð á síðasta ári en entist ekki lengi þar. Er ekki í starfi í boltanum sem stendur, hefur getið sér gott orð og er vafalítið til í tuskið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Ólafur Jóhannesson</b> - Það kitlar Óla alltaf að snúa aftur í þjálfun, það er klárt mál. Þekkir allt í bransanum og þó hann sé góður í sjónvarpinu líður honum betur á hliðarlínunni. Enn ein endurkoman?

Ólafur Jóhannesson - Það kitlar Óla alltaf að snúa aftur í þjálfun, það er klárt mál. Þekkir allt í bransanum og þó hann sé góður í sjónvarpinu líður honum betur á hliðarlínunni. Enn ein endurkoman?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Ejub Purisevic</b> - Einn sá færasti á landinu. Bætir leikmenn og býr til öflugt skipulag. Býr yfir öllu sem þarf í vopnabúrinu og það eru fáir betri í að setja saman varnarleik. Ejub starfar í dag við afreksþjálfun hjá FH.

Ejub Purisevic - Einn sá færasti á landinu. Bætir leikmenn og býr til öflugt skipulag. Býr yfir öllu sem þarf í vopnabúrinu og það eru fáir betri í að setja saman varnarleik. Ejub starfar í dag við afreksþjálfun hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Helgi Sigurðsson</b> - Hlutirnir eru ekki að ganga upp hjá Helga í Grindavík. Spilaði sinn fyrsta leik með Fram 1993 og sinn síðasta 2013. Fyrrum þjálfari Fylkis og ÍBV.

Helgi Sigurðsson - Hlutirnir eru ekki að ganga upp hjá Helga í Grindavík. Spilaði sinn fyrsta leik með Fram 1993 og sinn síðasta 2013. Fyrrum þjálfari Fylkis og ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Sigurvin Ólafsson</b> - Aðstoðarþjálfari FH hefur klárlega metnað til að verða aðalþjálfari í efstu deild. Spilaði með Fram um aldamótin.

Sigurvin Ólafsson - Aðstoðarþjálfari FH hefur klárlega metnað til að verða aðalþjálfari í efstu deild. Spilaði með Fram um aldamótin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Chris Brazell</b> - Áhugaverður ungur Englendingur sem stýrir Gróttu. Spennandi þjálfari sem þarf þó aðeins að bæta samskipti við andstæðinga, dómara og fjölmiðla.

Chris Brazell - Áhugaverður ungur Englendingur sem stýrir Gróttu. Spennandi þjálfari sem þarf þó aðeins að bæta samskipti við andstæðinga, dómara og fjölmiðla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Bjarni Jóhannsson</b> - Reynslubolti sem gæti komið inn og siglt skútunni út tímabilið, frá fallsætunum. Bjarni hefur víða komið við og var í eitt ár aðstoðarþjálf­ari Fram þegar Ásgeir Sig­ur­vins­son þjálfaði liðið.

Bjarni Jóhannsson - Reynslubolti sem gæti komið inn og siglt skútunni út tímabilið, frá fallsætunum. Bjarni hefur víða komið við og var í eitt ár aðstoðarþjálf­ari Fram þegar Ásgeir Sig­ur­vins­son þjálfaði liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Eiður Smári Guðjohnsen</b> - Hætti hjá FH vegna vandræðagangs utan vallar en enginn efast um hans hæfileika og þekkingu í boltanum. Vonandi snýr Eiður aftur í bransann sem fyrst.

Eiður Smári Guðjohnsen - Hætti hjá FH vegna vandræðagangs utan vallar en enginn efast um hans hæfileika og þekkingu í boltanum. Vonandi snýr Eiður aftur í bransann sem fyrst.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.