Fotbolti.net
27.07.26 - 14:52
Kári Snorrason

Álitsgjafar spá í Akureyrarslaginn - Verður þá með 200% fleiri mörk en Djuric

Búist er við um 2000 áhorfendum.

Búist er við um 2000 áhorfendum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA tekur á móti Þór á nýjum Greifavelli í kvöld. Mikil eftirvænting ríkir fyrir Akureyrarslagnum en flautað verður til leiks 19:15.

Fótbolti.net fékk tvo stuðningsmenn, einn frá hvoru liði, og tvo óháða álitsgjafa til að rýna í leikinn og spá í spilin.
Líkleg byrjunarlið í Akureyrarslagnum - Fjórir í banni og enginn Aron Einar
TENGT EFNI

Líkleg byrjunarlið í Akureyrarslagnum - Fjórir í banni og enginn Aron Einar

Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Þór
Andri Fannar Stefánsson, fyrrverandi leikmaður KA
KA 2-0 Þór

Risastór og sögulegur dagur á Brekkunni á geggjuðum nýjum velli. Trúi ekki að leikurinn verði jafn lokaður og hann var í fyrri umferðinni. ÞÞÞ verður með HM-línuna og lætur hann fljóta betur svo við fáum stórskemmtilegan leik.

Þetta verður 2-0 heimasigur þar sem mínir menn komast yfir með opnunarmarki frá Grímsa sem væri nú vel við hæfi. Þórsararnir munu síðan reyna síðan hvað þeir geta til að jafna en komast lítt áleiðis og svo innsiglar Valdimar Logi sigurinn eftir vel útfærða skyndisókn seint í leiknum.

Óðinn Svan Óðinsson, stuðningsmaður Þórs
KA 0-1 Þór

Aron Birkir skorar og verður þá með 200% fleiri mörk en Danijel Dejan Djuric.

Ragnar Bragi Sveinsson, leikmaður Fylkis og sparkspekingur
KA 4-3 Þór

AP stimplar sig inn með tvennu. Hans Viktor með eitt og Haxgrimur klárar þetta aftur með winner á 90 mínútu.

Erfiðara að spá í markaskorara hjá Þór en herra sjálfsmark mun setja eitt fyrir þá.

Arnór Gauti Jónsson, leikmaður Slaven Belupo
KA 1-2 Þór

Maður getur voða lítið lesið í deildina og gengið. Þessi leikur er önnur skepna. En ég held að Eiður Ben, kóngurinn í Þór, nái að elda eitthvað gott og þeir vinni 1-2.
Andri Fannar fagnar bikarsigri KA 2024.

Andri Fannar fagnar bikarsigri KA 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn Svan spáir marki frá Aroni Birki, markverði Þórs.

Óðinn Svan spáir marki frá Aroni Birki, markverði Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ragnar Bragi Sveinsson léttur.

Ragnar Bragi Sveinsson léttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Gauti gekk nýlega í raðir Slaven í Króatíu.

Arnór Gauti gekk nýlega í raðir Slaven í Króatíu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.