Fotbolti.net
27.07.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Barcelona og Ajax ekki að ná samkomulagi

Barcelona og Ajax ekki að ná samkomulagi
Canon

Mynd: EPA

Marc-Andre Ter Stegen, markvörður Barcelona, er að öllum líkindum á leið til Ajax á láni.

Þessi 34 ára gamli markvörður var á láni hjá Girona á síðustu leiktíð en hann spilaði aðeins tvo leiki vegna meiðsla.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að félagaskiptin hefðu átt að ganga í gegn í dag en félögin hafa ekki komist að samkomulagi um hversu mikið spænska félagið á að borga af launum hans.

„Við viljum fá leikmen sem geta hjálpað Ajax að bæta sig sem lið. Við viljum taka réttar ákvarðanir en hlutirnir í heimsfótboltanum eru ekki auðveldir," sagði Michal, stjóri Ajax, en hann var stjóri Girona á síðustu leiktíð.

„Það vita allir hvað er í gangi. Við vonumst til að hann (Ter Stegen) hjálpi okkur og við getum talað um hann sem fyrst."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.