Fotbolti.net
27.07.26 - 16:19
Kári Snorrason

Dusan Tadic nýr liðsfélagi Willums (Staðfest)

Við undirskrift.

Við undirskrift.

Canon

Mynd: NEC NIJMEGEN

Dusan Tadic er genginn í raðir hollenska félagsins NEC Nijmegen. Hann kemur á frjálsri sölu frá Al-Wadha í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Tadic gerði garðinn frægan með Southampton og Ajax. Hann yfirgaf hollenska félagið 2023 og hélt þaðan til Tyrklands og síðar á Arabíuskagann.

Hann skrifar undir tveggja ára samning við Nijmegen og verður þar liðsfélagi Willums Þórs Willumssonar.

Willum gekk til liðs við félagið fyrr á árinu frá Birmingham í Englandi. Hann er samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.