Fotbolti.net
27.07.26 - 11:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kennie tuðaði sig í bann

Kennie fékk gult í gær.

Kennie fékk gult í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kennie Chopart fékk í gær sitt fjórða gula spjald í sumar, er því kominn í leikbann og mun ekki spila næsta leik Fram í Bestu deildinni. Fram heimsækir Vestmannaeyjar á laugardag og mætir ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum á laugardag.

Kennie, sem er fyrirliði Fram og er algjör lykilmaður í liðinu, var eitthvað illa fyrirkallaður og var stálheppinn að fá ekki gult spjald fyrr í seinni hálfleiknum eftir mikið tuð þegar honum fannst hann ekki hafa brotið af sér. Helgi Mikael dómari sýndi honum svo gula spjaldið tæpu korteri seinna.
„Dómgæslan var frábær, ekkert út á hana að setja. Ég veit ekki af hverju Kennie var pirraður, hann var pirraður af því að það var dæmt brot á hann örlítið áður, það sat ennþá í honum þegar hann þurfti að elta Kjartan Kára í gegnum vörnina og reyna bjarga einhverju. Ég hef bara ekki spurt hann að því, veit ekki hverju hann var að pirra sig á þessu, en hann er bara kominn í leikbann núna," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, við SÝN Sport eftir leikinn.

Jón Gísli Eyland Gíslason fékk þá sitt sjöunda gula spjald þegar ÍA tók á móti Stjörnunni í gær. Jón Gísli verður ekki með ÍA gegn Víkingi en sá leikur verður væntanlega spilaður á sunnudag.

16. umferðin í Bestu deildinni klárast í kvöld með tveimur leikjum.

mánudagur 27. júlí
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)
Jón Gísli skoraði í gær en spilar ekki gegn Víkingi.

Jón Gísli skoraði í gær en spilar ekki gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.