Fotbolti.net
26.07.26 - 23:26
Sigurjón Árni Torfason

Viktor Jóns blæs á sögusagnir: Þetta er bara mitt félag

Auglýsing
Viktor Jónsson ánægður eftir leik.

Viktor Jónsson ánægður eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tóku á móti Stjörnunni núna í kvöld á Elkem vellinum á Akranesi í 16. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með öruggum 5-1 sigri Skagamanna. Viktor Jónsson átti mjög flottan leik skoraði og lagði upp. Fótbolti.net voru mættir á svæðið og náðu tali af Viktori eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 5 - 1 Stjarnan
„Bara gleði, léttir, það var stemning sko, bullandi stemning. Loksins einhver læti í klefanum og aðeins skemmtilegra en hitt."

„Loksins bara gerðum við það sem við þurftum að gera. Við náðum að halda orkunni uppi og talandanum, Bara fara í grunngildin þar sem þetta byrjar. Búinn að taka góða og langa fundi núna í vikunni og fara yfir það hvernig við ætluðum að koma inn í þennan leik og við bara fylgdum plani loksins."

Viktor hefur verið orðaður frá ÍA og sagður vilja koma sér frá félaginu en Viktor blæs á það.

"Nei, það bara hefur aldrei komið til greina að fara neitt. Kom mér á óvart hversu háværar sögusagnirnar væru í gangi því það hefur ekki átt sér stað nein umræða önnur en sú ég sé ekki að fara neitt. Bæði hafa þjálfararnir sagt það við mig og ég sagt það við þjálfarana, ég fer ekki neitt. Þetta er mitt félag" Sagði Viktor við Fótbolti.net eftir leik.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.