Fotbolti.net
26.07.26 - 23:06
Sigurjón Árni Torfason

Lárus Orri: Ágætis áminning útaf hverju maður er í þessu

Auglýsing
Lárus Orri var eðlilega ánægður eftir leik.

Lárus Orri var eðlilega ánægður eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tóku á móti Stjörnunni í 16. umferð Bestu deildar karla á Elkem vellinum á Akranesi núna í kvöld. Leiknum lauk með 5-1 sigri ÍA og mjög sannfærandi sigur heimamanna staðreynd. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir á staðinn og náðu tali af Lárusi eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 5 - 1 Stjarnan
„Bara gríðarlega ánægður. Þetta er svona, það er langt síðan við höfum unnið síðasta leik, ágætt að fá smá svona „reminder“ út af hverju maður er í þessu. Það er einmitt eins og manni líður akkúrat núna."

Bæði lið gerðu töluvert af breytingum en Lárus setti Árni Marínó aftur í markið eftir að hafa verið að glíma við meiðsli.
„Já, hún var það. Já, Jón Sölvi er búinn að standa sig vel. Árni var búinn að spila mjög vel þangað til hann meiddist, þannig að við erum bara með tvo mjög góða markmenn og nú er það bara hlutverk þeirra beggja að sá sem spilar sé að standa sig vel. Árni veit það að Jón Sölvi er að narta í hælana á honum, þannig að hann verður heldur betur að vera á tánum og hann var það í dag, eins og allt liðið."

Skagamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir í 2-0 eftir að fyrri hálfleikurinn var aðeins 10 mínútna gamall.

„Ég sagði raunverulega ekkert við þá. Við erum bara búnir að vinna í vissum hlutum sem við höfum kannski pínu gleymt núna hérna undanfarnar vikur. Við fengum það bara aftur inn í, inn í leikinn hjá okkur og þetta snýst ekki um neitt í rauninni sem ég segi við leikmennina. Leikmennirnir finna þetta líka, skynja þetta allir. Að vera í fótbolta ef að illa gengur er ógeðslega erfitt og hundleiðinlegt þannig að ég held að menn hafi líka bara komið með nóg." Sagði Lárus þegar Fótbolti.net náði af honum tali.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.