Fotbolti.net
27.07.26 - 10:09
Elvar Geir Magnússon

Van de Ven segir Tottenham sýna nýjan metnað

Micky van de Ven.

Micky van de Ven.

Canon

Mynd: EPA

Micky van de ven, varnarmaður Tottenham, segir að leikmannaviðskipti félagsins í sumar sýni nýjan metnað eftir óásættanlegt tímabil.

Þá telur hann að liðið muni spila skemmtilegri bolta undir stjórn Roberto De Zerbi.
Tottenham hefur hafnað í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar síðustu tvö tímabil og bjargaði sér naumlega frá falli í ár. Eftir að De Zerbi tók við hefur Tottenham eytt 237 milljónum punda á markaðnum.

„Það er gott að sjá að félagið hefur gert breytingar. Nýr metnaður félagsins er sjáanlegur. Síðasta tímabil var taugatrekkjandi og óásættanlegt af okkar hálfu. Nú lítum við ekki í baksýnisspegilinn heldur förum ferskir inn í nýtt tímabil," segir Van de Ven sem er í viðræðum um nýjan samning.

„Ég býst við því að við verðum meira með boltann en á síðasta tímabili, ég býst við meira skemmtanagildi fyrir stuðningsmenn okkar því við viljum spila meiri sóknarbolta."

Fyrr í þessum mánuði sló Tottenham tvívegis kaupmet sitt, fyrst með því að kaupa Mateus Fernandes frá West Ham fyrir 85 milljónir punda og svo með því að fá Sandro Tonali frá Newcastle fyrir 100 milljónir punda.

Þá hefur Jan Paul van Hecke komið frá Brighton ásamt því að reynsluboltarnir Marcos Senesi, Andrew Robertson og Martin Dubravka komu á frjálsri sölu.

„De Zerbi hefur komið inn með mikla orku, nýju leikmennirnir hafa líka verið frábærir og passa vel inn i hópinn," segir Van de Ven.
Roberto De Zerbi.

Roberto De Zerbi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.