Fotbolti.net
26.07.26 - 15:04
Brynjar Ingi Erluson

Setja verðmiða á Vini Jr

Real Madrid vill fá háa upphæð fyrir Vini Jr

Real Madrid vill fá háa upphæð fyrir Vini Jr

Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Real Madrid mun vilja að minnsta kosti 136 milljónir punda fyrir brasilíska sóknarmanninn Vinicius Junior, en hann hefur verið orðaður við Englandsmeistara Arsenal.
Framtíð Vini Jr hjá Real Madrid er óráðin en hann mun funda með umboðsmönnum sínum og stjórnarmönnum félagsins í næstu viku til að ræða næstu skref.

Brasilíumaðurinn hefur verið í viðræðum við Madrídinga um nýjan samning frá byrjun síðasta árs en enn ber mikið í milli.

Vini Jr er sagður fara fram á um 30 milljónir evra í árslaun en Real Madrid er aðeins reiðubúið að bjóða honum 20 milljónir.

Takist aðilunum ekki að semja mun Real Madrid opna á sölu í sumar enda á leikmaðurinn aðeins eitt ár eftir af samningi sínum.

Samkvæmt Sport ætla Madrídingar ekki að selja hann fyrir minna en 136 milljónir punda.

David Ornstein hjá Athletic hefur greint frá því að Arsenal kanni möguleikann á að fá Vini Jr. Lundúnaliðið þyrfti því að slá félagaskiptamet ensku úrvalsdeildarinnar til að landa honum.

Metið á Liverpool, sem keypti Alexander Isak frá Newcastle United fyrir 125 milljónir punda undir lok síðasta sumarglugga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.