27.07.26 - 12:12
Kári Snorrason
Leggur flautuna á hilluna viku eftir að hafa dæmt úrslitaleik HM

Gefur Enzo Fernandez rauða spjaldið í úrslitaleiknum.

Mynd: EPA

Fyrsta verkefni Vincic á alþjóðavísu var Evrópuleikur Fylkis.

Slóvenski dómarinn Slavko Vincic hefur lagt flautuna á hilluna aðeins rúmri viku eftir að hafa dæmt úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
Slóvenska fótboltasambandið greinir frá tíðindunum en Vincic er 46 ára gamall og býr yfir gífurlegri reynslu sem alþjóðadómari hjá FIFA.
Hann byrjaði að dæma á alþjóðavísu árið 2010 og var hans fyrsta verkefni á því sviði Evrópuleikur Fylkis og Torpedo Zhodino frá Belarús sem fram fór á Laugardalsvelli.

Í kjölfarið á því fór hann hratt upp metorðastigann hjá FIFA. Hann dæmdi úrslitaleik Borussia Dortmund og Real Madrid í Meistaradeildinni árið 2024.
Tveimur árum áður dæmdi hann úrslitaleik Evrópudeildarinnar á milli Eintracht Frankfurt og Rangers.
Í tilkynningu slóvenska fótboltasambandsins segir að einn besti dómari sögunnar sé að kveðja sviðið.