27.07.26 - 09:43
Elvar Geir Magnússon

Diomande fer til Real Madrid - Risaverðmiði á Barcola

Yan Diomande.

Mynd: EPA

Bradley Barcola.

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes.

Mynd: EPA

Mo Salah.

Mynd: EPA

Yan Diomande.

Mynd: EPA
Góðan og gleðilegan mánudaginn og velkomin með okkur í slúðurpakkann góða. Félögin eru á fullu að reyna að styrkja sig fyrir komandi tímabil.
Kantmaðurinn Yan Diomande (19) er á leið frá RB Leipzig til Real Madrid fyrir yfir 100 milljónir punda. Fílabeinsstrendingurinn virtist á leið til PSG en franska liðið hefur dregið sig úr baráttunni og Diomande gert samkomulag við Real Madrid um kaup og kjör. (BBC)
Paris St-Germain vill fá 145 milljónir punda fyrir franska framherjann Bradley Barcola. Arsenal og Liverpool hafa áhuga á honum. (Times)
Arsenal hefur ekki farið af stað í viðræð'um um brasilíska frmaherjann Vinicius Jr (26) en Real Madrid hefur sett 137 milljóna punda verðmiða á hann. (Sport)
Arsenal er tilbúið að bjóða Vinicius stærsta samning í sögu félagsins. Það er þó í forgangi hjá leikmanninum að gera nýjan samning við Real Madrid en hann á eitt ár eftir af núgildandi samningi. (Mirror/AS)
Arsenal ætlar að setja aukinn þunga í viðræður um kaup á brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes (28) frá Newcastle. (TalkSport)
Bruno Guimaraes hefur sagt umboðsmönnum sínum að hann vilji að framtíð sín skýrist á næstu vikunni. (TeamTalk)
Tottenham er líklegast til að landa brasilíska kantmanninum Savinho (22) frá Manchester City. (Sun)
Al-Hilal er í viðræðum við Everton um senegalska kantmanninn Iliman Ndiaye (26). (Fabrizio Romano)
Chelsea mun fara fram á talsverða upphæð fyrir portúgalska kantmanninn Pedro Neto (26) en Liverpool, Manchester City og félög í Sádi-Arabíu hafa áhuga á honum. (Mail)
Besiktas bíður eftir ákvörðun frá egypska framherjanum Mohamed Salah (34) eftir að hafa lagt fram sitt síðasta tilboð. Salah er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Liverpool. (Mail)
Bournemouth hyggst ekki selja franska sóknarmanninn Junior Kroupi (20) en Barcelona hefur áhuga á honum. (Marca)
Argentínski miðjumaðurinn Franco Mastantuono (18) gæti farið til Fulham ef Real Madrid ákveður að lána hann. (AS)
Juventus er að reyna að kaupa hollenska framherjann Joshua Zirkzee (25) frá Manchester United. (Gazzetta dello Sport)
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha (31) vill berjast um sæti í liði Bayern München en þýska félagið hyggst selja hann. (Bild)