Fotbolti.net
27.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Svöruðu falsfréttum um Musiala

Svöruðu falsfréttum um Musiala
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska félagið Galatasaray sá sig knúið til að tjá sig um orðróma þess efnis að félagið væri í viðræðum um Jamal Musiala, leikmann Bayern Munchen.
Musiala hefur verið orðaður við tyrkneska félagið en það er ekkert til í þeim fregnum.

„Fréttir um að félagið okkar hafi náð samkomulagi við Jamal Musiala og Bayern München eru ekki sannar. Þessu er hér með komið til almennings," segir í yfirlýsingu frá Galatasaray.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi segir frá því að Musiala verði pottþétt áfram hjá Bayern. Hann er launahæsti leikmaður liðsins og er á samning til ársins 2030.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.