Fotbolti.net
26.07.26 - 22:52
Sigurjón Árni Torfason

Jón Þór áhyggjufullur: Ég er bara orðlaus

Auglýsing
Jón Þór hefur áhyggjur af stöðunni!

Jón Þór hefur áhyggjur af stöðunni!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan mætti ÍA núna í kvöld á Elkem vellinum á Akranesi í 16. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 5-1 Sigri ÍA og sáu Stjarnan aldrei til sólar í kvöld. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu á svæðinu og náðu tali af Jóni Þór.
Lestu um leikinn: ÍA 5 - 1 Stjarnan
„Ég bara er orðlaus. Við getum ekki skýlt okkur bak við þreytu. Helmingurinn af liðinu í kvöld var ekki að spila leikinn á síðastliðinn fimmtudag, bara hugarfarið í dag var bara hræðilegt. Mér fannst bara Skagamennirnir gjörsamlega hlaupa yfir okkur, og gerðu það vel og ég bara óska Skagamönnum til hamingju með sigurinn. Hann var fyllilega verðskuldaður og þeir gerðu hérna, gerðu þetta hrikalega vel en við reyndum ekki einu sinni að svara því. Mér fannst Skagamennirnir gera vel að setja boltana hérna aftur fyrir okkur, annaðhvort komast í þau hlaup á bak við okkur eða hérna, vinna seinni boltana og þeir unnu þá nánast undantekningarlaust vegna þess að við bara hlupum ekki til baka og það voru bara, þú veist, grunngildi sem voru ekki í lagi hérna og við mættum bara ekki í þau og því fór sem fór."

Stjarnan hafa núna tapað tveimur leikjum í röð í Bestu deildinni og hafa gert það sannfærandi, 5-0 gegn KR og núna 5-1 gegn ÍA.

„Ég held að það sé ekkert hægt að taka varnarleikinn eitthvað út úr þessu. Ég held að það sé bara þetta menn voru bara ekki tilbúnir að leggja í leikinn það sem þurfti í þennan leik vegna þess að þetta var ekkert sem að átti að koma okkur á óvart. Við vissum að Skagamennirnir myndu vilja byrja leikinn af miklum krafti og hæla okkur, vitandi það að við erum á milli Evrópuleikja og hérna, þannig að það er ekki eins og það hafi komið okkur eitthvað í opna skjöldu eða hafi átt að gera það alla vega. En við vorum bara engan veginn tilbúnir í það í dag og hvort að menn séu að spara sig eða hlífa sér eða bara hvað sem er, bara ótrúlegt."

Daníel Finns hefur verið sagður ósáttur við stöðu sína hjá Stjörnunni.

„Þú verður að spyrja hann að því."

Sagði Jón Þór við blaðamann Fótbolti.net eftir leik.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.