Fotbolti.net
26.07.26 - 17:04
Brynjar Ingi Erluson

Nýr kafli hjá Chiesa - „Hann tók sínar ákvarðanir og lítið sem ég gat sagt“

Federico Chiesa

Federico Chiesa

Canon

Mynd: EPA

Ítalski vængmaðurinn Federico Chiesa fær nýtt upphaf hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool eftir að hafa fengið takmarkaðar mínútur á síðustu tveimur árum.
Liverpool fékk Chiesa hræódýrt frá Juventus í ágúst fyrir tveimur árum en hann komst aldrei almennilega inn í myndina hjá Arne Slot.

Chiesa fékk mínútur hér og þar en festi sig aldrei í sessi. Margir bjuggust við því að hann fengi stærra hlutverk á síðasta tímabili, sérstaklega eftir kraftmiklar innkomur af bekknum í upphafi þess, en hann uppskar ekki almennilegt tækifæri.

„Eins og staðan er núna er ég ánægður hjá Liverpool. Ég elska félagið, stuðningsmennina og allt sem því fylgir. Ég legg mig allan fram við að vinna mér inn tækifæri hér og svo sjáum við hvað gerist.“

„En akkúrat núna hugsa ég aðeins um Liverpool,“ sagði Chiesa.

Slot var rekinn í síðasta mánuði og Andoni Iraola tók við stjórnartaumunum. Chiesa var spurður hvort stjóraskiptin mörkuðu nýtt upphaf fyrir hann.

„Ég veit það ekki. Það er mjög erfitt að segja til um það. Upphaf hvers tímabils markar ákveðið nýtt upphaf. Kannski hefur það of oft verið þannig.“

„Ég reyni að gera mitt besta undir stjórn nýja stjórans, rétt eins og ég gerði undir stjórn Arne Slot.“

„Mér fannst ég vera tilbúinn í stærra hlutverk á síðasta tímabili en það var undir stjóranum komið hvort hann notaði mig. Auðvitað vildi ég spila meira en svona er þetta.“

„Stjórinn var með sínar hugmyndir og tók sínar ákvarðanir. Ég get lítið sagt við því. Svona er fótboltinn en við skulum kalla þetta nýjan kafla. Það er kominn nýr stjóri og ég verð að einbeita mér að því,“ sagði Chiesa.

Chiesa skoraði í fyrsta æfingaleiknum undir stjórn Iraola er Liverpool vann Sunderland, 4-2, í sumarseríu ensku úrvalsdeildarinnar í Bandaríkjunum í nótt.
Chiesa var ekki stór hluti af áætlunum Slot

Chiesa var ekki stór hluti af áætlunum Slot

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.