27.08.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon
Delap til Forest (Staðfest) - Keyptur fyrir ótrúlega upphæð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Liam Delap hefur verið keyptur til Nottingham Forest frá Chelsea fyrir 50 milljónir punda. Hann gerir fimm ára samning í Skírisskógi.
Delap skoraði aðeins eitt deildarmark fyrir Chelsea á síðasta tímabili og Lundúnafélagið græðir 20 milljónir á honum. En Delap er 23 ára og hafði verið duglegur við markaskorun fyrir Ipswich áður en hann var keyptur til Chelsea.
Delap skoraði aðeins þrjú mörk samtals í 47 leikjum fyrir Chelsea svo þessi upphæð sem hann er keyptur á vekur vissulega mikið umtal og býr til mörg spurningamerki.
Forest mætir Liverpool á laugardaginn.

The rebel city strengthens once again. pic.twitter.com/Z0FIjp8zMq
— Nottingham Forest (@NFFC) August 27, 2026