Fotbolti.net
27.08.26 - 09:51
Elvar Geir Magnússon

Herrera spilar frítt fyrir Real Zaragoza (Staðfest)

Herrera í leik með Boca Juniors.

Herrera í leik með Boca Juniors.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Ander Herrera hefur ákveðið að loka hringnum og er kominn aftur til uppeldisfélags síns, Real Zaragoza á Spáni. Herrera er 37 ára og kemur á frjálsri sölu frá Boca Juniors í Argentínu.

Zaragoza hefur glímt við erfið fjárhagsvandamál og er nú í spænsku C-deildinni.

„Þetta er síðasti draumur minn á ferlinum, koma aftur heim á staðinn þar sem ég ólst upp og til félagsins sem gaf mér tækifæri, ekki bara sem fótboltamaður heldur manneskja," segir Herrera.
„Ég er enn með ástríðuna fyrir fóboltanum. Real Zaragoza á að spila Evrópuleiki og berjast um titla. Ég vona að gæði mín og reynsla hjálpi liðinu að komast aftur þar sem það á heima."

Herrera snýr aftur eftir fimmtán ára fjarveru; hann átti tvo kafla hjá Athletic Bilbao ásamt því að spila fyrir Manchester United, Paris St-Germain og Boca. Hann vann Evrópudeildina, FA-bikarinn og marga deildartitla; spilaði undir stjórn Jose Mourinho, Thomas Tuchel og Marcelo Bielsa og deildi klefum með Lionel Messi, Neymar og Wayne Rooney.

Eins og áður segir er Zaragoza í erfiðum málum og fjárhagsstaða liðsins er ekki góð. Herrera þiggur ekki laun fyrir að spila fyrir félag sitt.

„Ég þarf ekki samning, mér hefur gengið vel á ferlinum og hef passað upp á peningina mína. Ég gef sjálfum mér þá gjöf að klæðast þessari treyju því ég vil hjálpa félaginu mínu og borginni minni. Það er eitthvað sem ég get gert og gerir mig stoltan að geta hjálpað," segir Herrera.

Margt hefur breyst hjá Real Zaragoza en þegar Herrera var ungur strákur horfði hann á liðið vinna Arsenal í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa.

„Ég vil ekki eyða of mikilli orku í fortíðina. Það hefur auðvitað verið sorglegt að sjá félaginu hraka. Það er búið að tala of mikið um hvað var gert rangt. Hættum að hugsa um það neikvæða og það sem gerðist í fortíðinni. Byggjum upp framtíðina og mætum á æfingar alla daga með bros á vör."

Heimild: BBC

Herrera í leik með Manchester United.

Herrera í leik með Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Með Athletic Bilbao.

Með Athletic Bilbao.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.