Fotbolti.net
27.08.26 - 08:10
Elvar Geir Magnússon

Liverpool hefur náð samkomulagi um Barcola

Sóknarleikmaðurinn Barcola í leik með franska landsliðinu.

Sóknarleikmaðurinn Barcola í leik með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Barcola virðis á leið til Liverpool, Al-Hilal er að kaupa Ollie Watkins og Chelsea vill Alex Scott. Þetta og ýmislegt fleira bitastætt í slúðurpakka dagsins.
Liverpool hefur náð samkomulagi við Paris Saint-Germain um kaup á Bradley Barcola (23). Aðeins á eftir að fínpússa samninginn en viðræður hafa verið á góðu skriði. Kaupin munu nema 120 milljónum punda. (Sky Sports)

Al-Hilal í Sádi-Arabíu hefur náð samkomulagi við Aston Villa um að kaupa enska sóknarmanninn Ollie Watkins (30) fyrir um 50 milljónir punda. (Fabrizio Romano)

Chelsea horfir til enska miðjumannsins Alex Scott (23) hjá Bournemouth sem gæti komið í stað Enzo Fernandez (25) sem er mögulega á leið til Manchester City. (Sun)

Rafael Leao (27) er nálægt því að ganga frá félagaskiptum frá AC Milan. Galatasaray er talið reiðubúið að greiða um 38 milljónir punda fyrir portúgalska kantmanninn sem Aston Villa hefur einnig sýnt áhuga. (Corriere dello Sport)

Chelsea er nálægt því að ganga frá 36 milljóna punda kaupum á ítalska varnarmanninum Honest Ahanor (18) frá Atalanta. (Sky Sport Ítalíu)

Alejandro Balde (22), varnarmaður Barcelona og spænska landsliðsins, er enn á óskalista Manchester United sem valkostur til að styrkja stöðu vinstri bakvarðar. (Fichajes)

Newcastle hefur ekki hætt við að reyna að fá belgíska kantmanninn Matias Fernandez-Pardo (21) frá Lille, en félagið mun ekki gera neitt sem gæti valdið vandræðum varðandi fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar. (Mail)

Sunderland hefur lagt fram tilboð í Jack Grealish (30) hjá Manchester City með það fyrir augum að fá hann á láni. (Athletic)

Fiorentina hefur hafnað fyrsta tilboði Nottingham Forest, sem hljóðaði upp á 6 milljónir punda, í brasilíska hægri bakvörðinn Dodo (27). (Sky Sport Ítalíu)

Marseille er bjartsýnt á að halda brasilíska sóknarmanninum Igor Paixao (26) þrátt fyrir áhuga frá Arsenal og Sunderland. (Teamtalk)

Aston Villa hefur sýnt áhuga á franska varnarmanninum Jean-Clair Todibo (26) sem leikur með West Ham. (Mail)

Argentínski miðjumaðurinn Exequiel Palacios (27) er nálægt því að ganga til liðs við Ipswich Town frá Bayer Leverkusen fyrir 23,5 milljónir punda. (Sky Sports)

Everton reynir að fá sóknarmanninn Franculino (22) frá Midtjylland. (Teamtalk)

Franski sóknarmaðurinn Martin Terrier (29) hjá Bayer Leverkusen er í sigtinu hjá sínu fyrrum félagi, Lille, sem mögulegur arftaki Fernandez-Pardo. (L'Equipe)
Alex Scott (til hægri).

Alex Scott (til hægri).

Canon

Mynd: EPA

Ahanor í leik með Atalanta.

Ahanor í leik með Atalanta.

Canon

Mynd: EPA

Jack Grealish.

Jack Grealish.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.