27.08.26 - 14:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marmoush til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Tottenham

Mynd: Tottenham
Omar Marmoush er genginn í raðir Tottenham en hann kemur á láni frá Manchester City. Lánið mun svo breytast í kaup næsta sumar og mun Tottenham greiða 50 milljónir punda og getur sú upphæð hækkað um 10 milljónir punda út frá bónusum.
Marmoush er 27 ára Egypti sem kom til City frá Frankfurt í janúar 2024.
Marmoush er 27 ára Egypti sem kom til City frá Frankfurt í janúar 2024.
Hann skoraði 16 mörk í 62 leikjum með City en hann var kostur númer tvö í fremstu línu á eftir Erling Haaland.
Tottenham hefur í sumar keypt Sandro Tonali, Mateus Fernandes, Savio og Jan Paul van Hecke. Þá hafa þeir Andy Robertson, Marcos Senesi, Martin Dubravka og Cole Ramsey komið á frjálsri sölu. Savio kom líkt og Marmoush frá Manchester City.

From Cairo to North London.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 27, 2026
Omar Marmoush, welcome to the Spurs family ???? pic.twitter.com/VChBAszuan