Fotbolti.net
27.09.21 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Lið vikunnar í enska - Saka og Salah í liðinu

Mohamed Salah er í liðinu

Mohamed Salah er í liðinu

Canon

Mynd: EPA

Húsasmiðjan
Þrjú lið eru með tvo fulltrúa í liði vikunnar hjá Garth Crooks á BBC en enginn leikmaður Brentford ratar í liðið eftir 3-3 jafntefli gegn Liverpool.
Aston Villa vann Manchester United nokkuð óvænt, 2-0. Kourtney Hause og Emilano Martinez fá báðir sæti í liðinu fyrir þá frammistöðu og þá vann Manchester City mikilvægan, 1-0, sigur á Chelsea.

Liverpool gerði 3-3 jafntefli við nýliða Brentford, Everton vann Norwich 2-0 og West Ham lagði Leeds með tveimur mörkum gegn einu.

Leicester og Burnley gerðu 2-2 jafntefli og þá gerðu Watford og Newcastle einnig jafntefli, 1-1. Wolves vann Southampton 1-0 og Arsenal vann svo Tottenham Hotspur í nágrannaslag, 3-1.
Markvörður: Emiliano Martinez (Aston Villa) - Varði vel í sigrinum á Man Utd og tók Bruno Fernandes á taugum í vítinu.

Markvörður: Emiliano Martinez (Aston Villa) - Varði vel í sigrinum á Man Utd og tók Bruno Fernandes á taugum í vítinu.

Canon

Mynd: EPA

Kortney Hause (Aston Villa) - Frábær í vörninni og skoraði sigurmarkið á Old Trafford.

Ruben Dias (Man City) - Klettur í vörn City gegn Chelsea og bjargaði þeim á ögurstundu frá Mateo Kovacic.

Aymeric Laporte (Man City) - Hann, ásamt Dias, náði að halda Romelu Lukaku í skefjum og steig ekki feilspor.

Bukayo Saka (Arsenal) - Lagði upp fyrsta markið og skoraði svo þriðja. Óaðfinnanlegur í sókninni.

Jordan Henderson (Liverpool) - Spilaði vel á miðjunni í jafnteflinu gegn Brentford og lagði upp fyrsta markið fyrir Diogo Jota.

Abdoulaye Doucoure (Everton) - Skoraði annað markið og alger lykilmaður í liðinu í sigrinum á Norwich.

Emile Smith-Rowe (Arsenal) - Mögnuð frammistaða gegn Tottenham. Skoraði fyrsta markið og lagði svo upp annað fyrir Aubameyang.

Mohamed Salah (Liverpool) - Skoraði eitt mark og það 100. í deildinni í aðeins 150 leikjum.

Michail Antonio (West Ham) - Tók út bann í síðasta leik en kom inn í leikinn gegn Leeds og gerði sigurmarkið í lokin.

Raul Jimenez (Wolves) - Skilaði sigrinum gegn Southampton. Hans fyrsta mark í deildinni eftir höfuðmeiðslin sem hann varð fyrir. Wolves svo sannarlega saknað hans.

Mynd: Heimasíða Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.