Fotbolti.net
27.09.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bruno Fernandes að glíma við „flókið vandamál"

Bruno Fernandes.

Bruno Fernandes.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, verður ekki með Portúgal gegn Noregi í Þjóðadeildinni í kvöld vegna meiðsla.

Fernandes fór af velli undir lok 3-2 sigurs Portúgals á Wales í síðasta leik og Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, greindi frá því að miðjumaðurinn væri að glíma við „flókið vandamál“.
„Hann kom meiddur frá United og sagði mér að hann hefði spilað með þennan verk í síðustu þremur leikjum. Það hefur háð honum.“

Jesus vill því ekki taka neina áhættu með Fernandes og vonast til að hann verði klár í næsta leik Portúgals gegn Danmörku á fimmtudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.