27.09.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maðurinn sem kom Man City í klandur

Rui Pinto.

Mynd: Spiegel

Man City var fundið sekt af 114 af 115 ákærum.

Mynd: EPA

Fyrir utan Etihad-leikvanginn, heimavöll Manchester City.

Mynd: EPA

Man City fagnar marki.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Rui Pinto.

Mynd: Spiegel
Rui Pinto er kannski ekki nafn sem margir Manchester City-stuðningsmenn þekkja. Verk hans ættu þeir hins vegar að þekkja vel.
Pinto, 37 ára Portúgali, stofnaði Football Leaks árið 2015 og birti þar fjölda trúnaðargagna úr fótboltaheiminum. Meðal gagnanna voru tölvupóstar og skjöl frá Manchester City um styrktarsamninga og greiðslur.

Gögnin voru síðar birt af þýska miðlinum Der Spiegel og fleiri evrópskum fjölmiðlum og urðu mikilvægur hluti af þeirri sögu sem endaði með því að enska úrvalsdeildin ákærði City fyrir 115 meint brot á fjármálareglum. Síðastliðinn föstudag var svo greint frá því að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum.
Hetja eða glæpamaður?
Pinto hefur þó aldrei verið einföld persóna í þessari sögu.
Hann var handtekinn í Ungverjalandi árið 2019 og framseldur til Portúgals. Hann hefur setið í fangelsi, verið í stofufangelsi og hefur einnig verið undir vitnavernd vegna þeirrar hættu sem hann telur sig vera í.
Árið 2023 fékk hann fjögurra ára skilorðsbundinn dóm fyrir meðal annars ólöglegan aðgang að gögnum. Hann fékk síðar einnig sex mánaða skilorðsbundinn dóm í Frakklandi.
Skoðanir á honum eru mjög skiptar. „Hann er tölvuþrjótur, punktur,“ sagði Rui Patricio, lögmaður Benfica, um Pinto og taldi að hann hefði aflað gagnanna með ólöglegum og óásættanlegum hætti.
Pinto hefur sjálfur sagt að markmið Football Leaks hafi verið að afhjúpa „huldu hlið fótboltans“. Hann ólst upp í Vila Nova de Gaia í Portúgal og var mikill stuðningsmaður Porto. Fyrrverandi kennari hans, Mario Falcao, segir að Pinto hafi frá unga aldri verið mjög fær í tölvum og telur mögulegt að blanda af æskuhugsjónum, ástríðu fyrir Porto og réttlætiskennd hafi átt þátt í því að hann lagði út í þessa vegferð. „Kannski fannst honum hann þurfa að leita réttlætis,“ sagði Falcao við BBC.
Ana Gomes, fyrrverandi þingmaður frá Portúgal á Evrópuþinginu, hefur meðal annars borið vitni Pinto í hag og segir hann meðal mikilvægustu uppljóstrara Portúgals.
„Ef þeir hafa ekkert að fela, hvað er þá vandamálið?“ sagði hún þegar hún var spurð um Manchester City.
Þrjú terabæt af leyndarmálum
Pinto afhenti Der Spiegel og samstarfsmiðlum þeirra gríðarlegt magn gagna. Alls voru þau meira en þrjú terabæt.
Christoph Winterbach, blaðamaður sem vann með gögnin hjá Der Spiegel, segir Pinto hafa haft gríðarleg áhrif.
„Hann er einn mikilvægasti uppljóstrari sem við eigum í Evrópu, jafnvel í heiminum,“ sagði Winterbach.
Sjálfur hefur Pinto fylgst náið með málinu gegn Manchester City úr vitnavernd og tjáði sig um niðurstöðuna á X á föstudag.
„Söguleg niðurstaða fyrir enska fótboltann," skrifaði Pinto.
Pinto hefur eytt síðustu sex árum við óvenjulegar aðstæður vegna þess sem hann gerði, hefur setið í bæði stofufangelsi og vitnavernd. Hvort hann sé hetja eða glæpamaður er enn umdeilt, en það er þó óumdeilt að einn Portúgali með tölvu hafði gríðarleg áhrif á eitt stærsta mál í sögu enska fótboltans.

A historic decision for English football, and one that comes to crown the work I carried out through Football Leaks. Today, we all know that, through structural manipulation and financial manoeuvring, Manchester City did not merely circumvent the rules, they turned them into a…
— Rui Pinto (@RuiPinto_FL) September 25, 2026