Fotbolti.net
27.09.26 - 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tóku ekki í höndina á Ísraelum - Spila með sorgarbönd

Tóku ekki í höndina á Ísraelum - Spila með sorgarbönd
Canon

Mynd: EPA

Leikur Ísraels og Írlands er í fullum gangi. Þessi leikur er mjög umdeildur í Írlandi.

Markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað að draga sig úr hópnum fyrir leikinn þar sem hann vildi alls ekki taka þátt vegna ástandsins á Gaza.
Aðrir leikmenn ákváðu að taka þátt en þeir tóku ekki í hendina á ísraelsku leikmönnunum fyrir leikinn eins og venjan er.

Þá litu þeir niður á meðan ísraelski þjóðsöngurinn var spilaður. Þá spila þeir með sorgarbönd til stuðnings fórnarlömbum á Gaza.

Þegar þetta er skrifað eru rúmlega tuttugu mínútur liðnar af leiknum og staðan 2-0 Írlandi í vil.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.