City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   sun 27. október 2024 21:39
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Átta marka jafntefli í stórslagnum - Fiorentina skoraði fimm án Alberts
Inter og Juventus gerðu ótrúlegt 4-4 jafntefli í stórleik helgarinnar í Seríu A á Ítalíu. Fiorentina vann á meðan 5-1 stórsigur á Roma í Flórens.

Derby D'Italia (Slagurinn um Ítalíu) er einn af þeim stærstu í ítalska boltanum.

Rígurinn milli félaganna er gríðarlegur og leggja liðin allt í sölurnar til að ná í hagstæð úrslit úr þessum leikjum.

Áhorfendur fengu allt fyrir peninginn í dag. Fimm mörk voru skoruð í fyrri hálfleiknum. Piotr Zielinski skoraði tvö vítaspyrnumörk fyrir Inter og þá komst Henrikh Mkhitaryan einnig á blað, en þeir Dusan Vlahovic og Timothy Weah gerðu mörk Juventus.

Denzel Dumfries tvöfaldaði forystu Inter á 53. mínútu og þá var leiðin til baka erfið fyrir Juventus en alls ekki ómöguleg. Thiago Motta gerði mikilvæga skiptingu á 62. mínútu er hann setti Kenan Yildiz inn á, en tyrkneski landsliðsmaðurinn bjargaði stigi fyrir Juventus með tveimur mörkum á ellefu mínútum.

Yildiz fékk boltann vinstra megin í teignum í báðum mörkunum og gerði vel í að klára færin.

Inter er í öðru sæti með 18 stig á meðan Juventus er í sætinu fyrir neðan með 17 stig.

Fiorentina kjöldró Roma, 5-1, í Flórens. Fiorentina var án Alberts Guðmundssonar í dag en það kom ekki að sök fyrir heimamenn sem unnu sannfærandi.

Moise Kean og Lucas Beltran komu Fiorentina í 2-0 á fyrstu sautján mínútunum áður en Kouadio Kone minnkaði muninn á 39. mínútu áður en Kean gerði annað mark sitt tveimur mínútum síðar.

Í síðari hálfleiknum bætti Edoardo Bove við fjórða markinu áður en þýski miðvörðurinn Mats Hummels kom boltanum í eigið net þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Fiorentina 5 - 1 Roma
1-0 Moise Kean ('9 )
2-0 Lucas Beltran ('17 , víti)
2-1 Kouadio Kone ('39 )
3-1 Moise Kean ('41 )
4-1 Edoardo Bove ('52 )
5-1 Mats Hummels ('71 , sjálfsmark)
Rautt spjald: Mario Hermoso, Roma ('65)

Inter 4 - 4 Juventus
1-0 Piotr Zielinski ('15 , víti)
1-1 Dusan Vlahovic ('20 )
1-2 Tim Weah ('27 )
2-2 Henrikh Mkhitaryan ('35 )
3-2 Piotr Zielinski ('37 , víti)
4-2 Denzel Dumfries ('53 )
4-3 Kenan Yildiz ('71 )
4-4 Kenan Yildiz ('82 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner
banner