Fotbolti.net
27.10.26 - 12:13
Elvar Geir Magnússon

Kane fagnaði á klúbbnum - Mbappe hundfúll

Harry Kane fór á klúbbinn.

Harry Kane fór á klúbbinn.

Canon

Mynd: Skjáskot

Harry Kane fagnaði Ballon d'Or gullboltanum á lokuðum næturklúbbi í London og skemmti sér fram á rauða nótt.

Eiginkona hans, Katie Goodland, og foreldrar hans, Patrick og Kim, voru meðal þeirra sem dönsuðu á Cirque le Soir klúbbnum í Soho hverfinu. Einnig voru Eric Dier, Ben Davies og Matt Doherty meðal vina hans sem voru viðstaddir.

Kane kom beint úr Palladium leikhúsinu og skálaði við viðstadda, hann hélt þó áfenginu í hófi enda er æfing framundan hjá Baeyrn München í dag. Stjörnuljós og kampavínsflöskur voru um allan salinn.
Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)
TENGT EFNI

Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)

Þrátt fyrir magnaða velgengni Kane á fótboltavellinum er hann þekktur fyrir að vera jarðbundinn og auðmjúkur, eitthað sem er svo sannarlega ekki algilt um stjörnur fótboltans.

Kylian Mbappe, sóknarmaður Frakklands og Real Madrid, hefur verið sakaður um að hafa sýnt Kane óvirðingu á athöfninni. Á myndbandsupptöku sýnir hann Kane litla athygli þegar enski landsliðsfyrirliðinn mætir til að heilsa upp á menn á fremsta bekk. Mbappe horfir fyrst í aðra átt áður en Kane nær athygli hans.

Þá stóð Mbappe ekki upp til að óska Kane til hamingju þegar hann var tilkynntur sigurvegari. Frakkinn endaði í öðru sæti í kjörinu og sagði það hreint út í viðtölum að hann ætti sjálfur skilið að vinna gullboltann.


Mbappe horfði í hina áttina.

Mbappe horfði í hina áttina.

Canon

Mynd: Skjáskot

Kane fagnaði á klúbbnum - Mbappe hundfúll
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.