Fotbolti.net
27.10.26 - 12:22
Elvar Geir Magnússon

Stjarnan hefur kynnt Rúnar Pál og Viktor Bjarka

Viktor Bjarki, Halldór Orri og Rúnar Páll á fundinum.

Viktor Bjarki, Halldór Orri og Rúnar Páll á fundinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kári Snorrason

Nú stendur yfir fréttamannafundur í Garðabænum þar sem Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari Stjörnunnar, er formlega kynntur.

Nýr formaður fótboltadeildar Stjörnunnar, Halldór Orri Björnsson, stýrir fundinum og hefur einnig staðfest yfirmann fótboltamála hjá félaginu.

Viktor Bjarki Arnarsson, sem var aðstoðarþjálfari Víkings, tekur við þessari nýju stöðu hjá félaginu.
Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Rúnar Páll er gríðarlega hátt skrifaður hjá félaginu en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018. Fyrr í þessum mánuði staðfesti félagið ráðningu hans. Rúnar hefur síðustu tvö ár stýrt Gróttu.

Ekkert var gefið út á fundinum varðandi það hvernig þjálfarateymi Stjörnunnar verður skipað að öðru leyti.

Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, er í Garðabænum og tekur menn tali. Viðtölin birtast á síðunni síðar í dag.
Rúnar Páll Sigmundsson.

Rúnar Páll Sigmundsson.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.