Fotbolti.net
27.11.21 - 05:55
Victor Pálsson
Subway

England í dag - Arsenal og Liverpool eiga leiki

England í dag - Arsenal og Liverpool eiga leiki
Canon

Mynd: EPA

Bæði Liverpool og Arseanl eru í eldlínunni í enska boltanum í dag er fimm leikir fara fram í umferðinni sem hefst klukkan 12:30.
Arsenal á fyrsta leik dagsins gegn Newcastle en það fyrrnefnda tapaði illa gegn Liverpool í síðustu umferð á meðan Newcastle er nú undir stjórn Eddie Howe og gerði jafntefli við Brighton um seinustu helgi.

Klukkan 15:00 hefjast þrír leikir og þar á meðal viðureign Liverpool og Southampton en þar er spilað á Anfield.

Lokaleikur dagsins er klukkan 17:30 er Brighton fær lið Leeds í heimsókn þar sem Brighton getur náð í langþráðan sigur en liðið vann síðast deildarleik þann 19. september gegn Leicester.

ENGLAND: Premier League
12:30 Arsenal - Newcastle
15:00 Crystal Palace - Aston Villa
15:00 Liverpool - Southampton
15:00 Norwich - Wolves
17:30 Brighton - Leeds
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.