Fotbolti.net
27.11.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leikmaður Breiðabliks hjálpaði til við að sannfæra Stefan

Stefan er mættur í grænt.

Stefan er mættur í grænt.

Canon

Mynd: Breiðablik

Stefan Alexander Ljubicic skrifaði fyrir viku síðan undir tveggja ára samning við Breiðablik en hann kemur til Blika á frjálsri sölu frá Keflavík eftir að samningur hans rann út.

Stefan er framherji sem skoraði tólf mörk í Bestu deildinni á liðnu tímabili, sem var hans besta tímabil á ferlinum.

Stefan fór yfir málin í viðtali með Kára Snorrasyni í vikunni.
„Það seldi mér að Jökull er þarna, ég veit að hann hefur haft mikinn áhuga á mér. Einkenni Blika síðustu ár, að spila flottan fótbolta, skora mikið af mörkum og pressa hátt, ég er þannig sem leikmaður en hef ekki alveg verið í þannig liðum að ég hafi getað sýnt það."

„Svo er einn besti fótboltavinur minn í liðinu, Valli. Það þurfti því ekki mikið að hugsa áður en ég ákvað að fara í Breiðablik,"
segir Stefan í viðtalinu sem má nálgast í spilaranum neðst.

Stefan segir að það hafi verið áhugi á sér erlendis frá, m.a. frá Asíu og Norðurlöndunum. „Ég á kærustu hér og lífið mitt er hér."

Hann stefnir áfram á að komast aftur erlendis en er mjög sáttur við að vera hjá Breiðabliki.

Valgeir náði að sannfæra Stefan
En að Valla, Valgeiri Valgeirssyni. Stefan og Valgeir spiluðu saman hjá HK á árunum 2020-21.

„Hann var fyrsti maðurinn til að senda á mig þegar hann heyrði af þessu. Ég er búinn að vera í stöðugu sambandi við hann síðan ég var í HK, nánast upp á dag. Hann er besti vinur minn í gegnum fótboltann. Hann náði að sannfæra mig og segja mér hvað væri gott við klúbbinn."

Valgeir hefur glímt við meiðsli á þessu ári .

„Hann er ekki vanur að vera meiddur, ég held að hann komi 10 sinnum sterkari til baka. Blikaliðinu vantaði kannski þessa orku sem þessi naggur býr yfir. Hann er sjálfur mjög spenntur að koma aftur, sendir á mig á hverjum degi úr ræktinni að hann sé að vinna í þessu. Ég er mjög spenntur fyrir því að hann snúi aftur," segir Stefan.
Valgeir Valgeirsson.

Valgeir Valgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leikmaður Breiðabliks hjálpaði til við að sannfæra Stefan
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic ræðir skrefið í Breiðablik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.