Fotbolti.net
27.11.26 - 15:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Marc McAusland spáir í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Marc McAusland er nýr þjálfari Njarðvíkur.

Marc McAusland er nýr þjálfari Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Serrano Spámaðaur
Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í kvöld með áhugaverðum leik í Skírisskógi.

Marc McAusland, nýr þjálfari Njarðvíkur, tók að sér að spá í leikina sem eru framundan.
McAusland tekur við Njarðvík (Staðfest)
TENGT EFNI

McAusland tekur við Njarðvík (Staðfest)

Nottingham Forest 1 - 2 Chelsea (20:00 í kvöld)
Mínir menn í Chelsea þurfa heldur betur að taka sig saman í andlitinu í kvöld. Ég held að Emegha og Palmer komi okkur í 2-0 áður en Delap minnkar muninn með marki eftir hornspyrnu undir lok leiks.

Leeds 3 - 1 Coventry (15:00 á morgun)
Calvert-Lewin skorar tvö mörk og kemur Leeds í góða stöðu. Jack Rudoni minnkar muninn í 2-1 en Bogle innsiglar sigurinn með marki undir lokin.

Manchester United 2 - 0 Brentford (15:00 á morgun)
Pochettino fær sinn fyrsta sigur á heimavelli. Stóri maðurinn Maguire skorar eftir hornspyrnu og gefur þeim Einari Orra og Halla Gumm eitthvað til að fagna. Mbeumo bætir svo við öðru marki rétt eftir hálfleik.

Ipswich 1 - 2 Aston Villa (17:30 á morgun)
Enciso kemur Ipswich yfir en Nico Jackson jafnar metin fyrir Villa. Ofurmaðurinn John McGinn tryggir svo mínum manni Vilhjálmi Frey sigurinn.

Everton 1 - 1 Liverpool (12:00 á sunnudag)
Leiðinlegur leikur þar sem bæði lið skora eftir hornspyrnur. Van Dijk skorar fyrir Liverpool og Michael Keane fyrir Everton.

Brighton 3 - 1 Newcastle (14:05 á sunnudag)
Heimasigur hjá Brighton sem kemst aftur á beinu brautina. De Cuyper, Gross og Kosoulas skora fyrir Máfana en Harvey Barnes nær að setja eitt mark fyrir Newcastle.

Crystal Palace 2 - 2 Hull (14:05 á sunnudag)
Dwight McNeil og Strand Larsen skora fyrir Palace. Stóri maðurinn Oli McBurnie skorar eitt mark og leggur upp annað fyrir Hull, þar sem Belloumi potar inn einu marki.

Fulham 2 - 4 Bournemouth (14:05 á sunnudag)
Hér verður nóg af mörkum! Evanilson skorar tvö, Rayan bætir við einu og James Hill skorar með skalla fyrir Bournemouth. Iwobi og Oskar Bobb sjá um mörk Fulham.

Sunderland 1 - 1 Tottenham (14:05 á sunnudag)
Enzo Le Fée skorar úr vítaspyrnu fyrir Sunderland en Kudus jafnar metin fyrir Tottenham.

Arsenal 1 - 0 Manchester City (16:30 á sunnudag)
Líklega mest spennandi leikur helgarinnar á pappír en gæti mögulega orðið sá leiðinlegasti. Arsenal nær að klóra í 1-0 sigur, enn og aftur, þar sem Gabriel skorar eftir fast leikatriði.

Fyrri spámenn:
Aron Valur (9 réttir)
Gummi Magg (6 réttir)
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Líf van Bemmel (5 réttir)
Gaui Lýðs (5 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Binni Willums (4 réttir)
Gyrðir Hrafn (4 réttir)
Aron Snær (4 réttir)
Hjammi (4 réttir)
Vonast til að sínir menn rífi sig í gang í kvöld.

Vonast til að sínir menn rífi sig í gang í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Nær Pochettino í sinn fyrsta sigur?

Nær Pochettino í sinn fyrsta sigur?

Canon

Mynd: EPA

Liverpool sækir nágranna sína heim.

Liverpool sækir nágranna sína heim.

Canon

Mynd: EPA

Spáir Arsenal sigri í stórleik helgarinnar.

Spáir Arsenal sigri í stórleik helgarinnar.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.