Fotbolti.net
27.11.26 - 14:33
Elvar Geir Magnússon

Man Utd hefur framlengt samning Bruno til 2028

Man Utd hefur framlengt samning Bruno til 2028
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur nýtt sér ákvæði og framlengt samning portúgalska fyrirliðans Bruno Fernandes um eitt ár.

Þetta þýðir að samningur miðjumannsins, sem er 32 ára, gildir nú til sumarsins 2028.
Bruno veikur og tæpur fyrir leikinn á morgun
TENGT EFNI

Bruno veikur og tæpur fyrir leikinn á morgun

Samningurinn átti að renna út næsta sumar en heimildir BBC herma að báðir aðilar hafi ákveðið að það væri í þeirra hag að virkja þann möguleika til ársins 2028.

Þetta þýðir að erlend félög munu ekki geta haft samband við Bruno þegar félagaskiptaglugginn opnar 1. janúar.

Portúgalski landsliðsmaðurinn staðfesti á þriðjudag að viðræðum um nýjan samning hefði verið hætt. Heimildir herma að þær muni hefjast aftur þegar staða United í deildinni hefur batnað.

Bruno er veikur heima hjá sér og æfði ekki með Manchester United í dag. Óvissa er með þátttöku hans í leik gegn Brentford á morgun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.