Fotbolti.net
28.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Paul Smith til Southampton (Staðfest)

Paul Smith til Southampton (Staðfest)
Canon
Markvörðurinn Paul Smith er kominn til Southampton frá 2.deildarliðinu Brentford. Smith sem er 24 ára skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið eftir að hafa staðist læknisskoðun. Smith hefur verið orðaður við nokkur úrvalsdeildarlið að undanförnu, m.a. Portsmouth og Tottenham. Smith segir að allar aðstæður hjá Dýrlingunum hafi heillað sig og þá sé David Coles markmannsþjálfari liðsins góður kostur. Smith mun örugglega vera á varamannabekk Southampton í leiknum gegn Manchester United um helgina en aðalmarkvörður liðsins er Antti Niemi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.