28.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Alpay til Suður-Kóreu (Staðfest)

Alpay var látin fara frá Aston Villa eftir þetta atvik gegn Englendingum.


Alpay var látin fara frá Aston Villa eftir þetta atvik gegn Englendingum.

Tyrkneski landsliðsmaðurinn Alpay hefur gengið til liðs við Suður-Kóreska liðið Incheon United. Alpay sem er þrítugur varnarmaður hefur verið án félags síðan að hann var leystur undan samningi hjá Aston Villa í október eftir að hafa látið öllum illum látum í landsleik gegn Englendingum. Alpay var skiljanlega ekki eftirsóttur á Englandi eftir þetta og hefur verið að leita sér að nýju liði síðan þá. Hann átti meðal annars í viðræðum við Herthu Berlin og Ancona en hann ákváð á endanum að fara í Suður-Kóresku deildina sem að var stofnuð í fyrra. Alpay sagði aðalástæðuna fyrir þessu vali sínu vera þær minningar sem að hann átti frá HM 2002 af áhorfendum í Suður-Kórea.
