Árni Vilhjálmsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að semja við félag í Frakklandi. Það hentar ágætlega fyrir hann og hans fjölskyldu þar sem kærasta hans, Sara Björk Gunnarsdóttir, spilar með Lyon í Frakklandi og parið er þar með syni sínum sem fæddist í nóvember.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var Árni, sem er 27 ára sóknarmaður, á leið til Tyrklands að semja við félag þar í landi þegar franska félagið, sem hann er að ganga til liðs við, sýndi áhuga.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var Árni, sem er 27 ára sóknarmaður, á leið til Tyrklands að semja við félag þar í landi þegar franska félagið, sem hann er að ganga til liðs við, sýndi áhuga.
Það mun koma í ljós fljótlega við hvaða félag Árni er að semja.
Árni er uppalinn í Breiðabliki og lék með liðinu á síðasta tímabili. Hann skoraði ellefu mörk í 21 leik í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar. Á ferlinum hefur Árni spilað með Breiðabliki, Haukum, Lilleström, Jönköping, Termalica, Chernomorets og Kolos Kovalivka.
Sjá einnig:
Árni Vill: Ég fæ stærri titilinn og eignast barnið eftir nokkrar vikur (6. okt '21)
Athugasemdir