Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. janúar 2023 09:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ensk félög eyddu margfalt meira en úr öðrum deildum
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Þegar gögn yfir félagsskipti leikmanna á milli landa frá síðasta ári eru skoðuð kemur í ljós að félög á Englandi búa yfir margfalt meiri fjármunum en félög í öðrum deildum Evrópu.


Samkvæmt opinberum tölum FIFA eyddu ensk félög 1,78 milljarði punda til að kaupa inn nýja leikmenn úr öðrum deildum á síðasta ári. Það er ótrúleg upphæð og er hún meira en þrefalt hærri heldur en samanlögð upphæð sem ítölsk félög eyddu í nýja leikmenn að utan.

Ítölsk félög eru í öðru sæti listans með 543 milljónir punda sem voru nýtt til leikmannakaupa utan landsteinanna en þar á eftir koma spænsk, frönsk og þýsk félög.

Shakhtar Donetsk er það félag sem seldi flesta leikmenn úr landi á síðasta ári en þeir eru 51 talsins og er hægt að kenna stríðinu í Úkraínu um. Þá voru tæplega 6 þúsund af þeim 55 þúsund áhugamönnum sem skiptu til annarra landa frá Úkraínu.

Ef kvennafótboltinn er skoðaður voru tæpar 3 milljónir punda notaðar til að kaupa leikmenn á milli landa, sem er 62% aukning frá 2021. Þar var Keira Walsh dýrust en hún fór frá Man City til Barcelona fyrir 400 þúsund pund - dýrustu félagsskipti sögunnar í kvennaboltanum.

Að lokum vekur athygli að tíu dýrustu leikmannakaup síðasta árs telja 12,5% af öllum fjármunum sem voru notaðir til félagaskipta. Í heildina voru leikmenn keyptir fyrir 5,25 milljarða punda.

Tíu dýrustu leikmannakaup á milli landa 2022:
1. Aurelien Tchouameni (Monaco - Real Madrid)
2. Darwin Nunez (Benfica - Liverpool)
3. Antony (Ajax - Manchester United)
4. Casemiro (Real Madrid - Manchester United)
5. Matthijs De Ligt (Juventus - Bayern Munich)
6. Ferran Torres (Manchester City - Barcelona)
7. Erling Braut Haaland (Borussia Dortmund - Manchester City)
8. Alexander Isak (Real Sociedad - Newcastle United)
9. Luis Diaz (Porto - Liverpool)
10. Raphinha (Leeds United - Barcelona)


Athugasemdir
banner
banner