Boreal Cup æfingamót liða í 5. deild er í fullu fjöri og hafa ýmsir áhugaverðir slagir farið fram á síðustu dögum.
Álafoss sigraði 5-1 gegn Knattspyrnufélaginu Miðbæ fyrir rúmri viku síðan og rúllaði svo yfir Þorlák 8-4 um síðustu helgi.
Alexander Aron Davorsson skoraði fimm mörk í sigrinum um helgina og var eitt þeirra frá miðju.
Smári vann þá góða sigra gegn Þorláki og Uppsveitum á meðan Léttir lagði RB að velli og tapaði fyrir Skautafélagi Reykjavíkur.
https://www.borealcup.com/
Álafoss 8 - 4 Þorlákur
1-0 Alexander Aron Davorsson
2-0 Alexander Aron Davorsson
3-0 Alexander Aron Davorsson
3-1 Ingvar Óli Sigtryggsson
4-1 Daníel Ingi Jónsson
4-2 Karl Viðar Magnússon
5-2 Alexander Aron Davorsson
6-2 Davíð Ívarsson
6-3 Karl Viðar Magnússon
7-3 Alexander Aron Davorsson
8-3 Axel Ýmir Jóhannsson
8-4 Patrekur Úlfarsson
KM 1 - 5 Álafoss
Smári 5 - 2 Uppsveitir
Smári 4 - 1 Þorlákur
Léttir 4 - 1 RB
Léttir 4 - 5 SR
Athugasemdir