Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári Gauta framlengir við bikarmeistarana út 2027
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Gautason hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem gildir út sumarið 2027.

Kári er 21 árs gamall bakvörður sem er uppalinn hjá KA. Hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2021. Hann var á láni hjá Dalvík/Reyni í fyrra, hann kom við sögu í 21 leik í 2. deild þegar liðið tryggði sér sæti í Lengjudeildinni.

Hann sprakk út hjá KA síðasta sumar en hann kom við sögu í 18 leikjum í deildinni og þá spilaði hann fimm leiki fyrir liðið í Mjólkurbikarnum þar sem liðið stóð uppi sem sigurvegari.

Kári er úr mikilli íþróttafjölskyldu en Logi bróðir hans spilar með KA í handbolta og Dagur bróðir hans spilar einnig handbolta, með Arendal í Noregi. Þá er Ásdís systir hans í fótbolta hjá KA.
Athugasemdir
banner
banner