Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 28. febrúar 2020 13:50
Magnús Már Einarsson
Leikur Víkings og Fylkis færður í Árbæ
Víkingur og Fylkir mætast í kvöld.
Víkingur og Fylkir mætast í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Víkings R. og Fylkis í Lengjubikarnum hefur verið færður af Víkingsvelli yfir á Wurth-völlinn í Árbæ.

Flautað verður til leiks klukkan 19:00 í kvöld.

Snjór er yfir gervigrasvelli Víkings en búið er að skafa völlinn í Árbænum.

Víkingur er með sex stig eftir tvo leiki í Lengjubikarnum en Fylkismenn eru með fjögur.

Leikir kvöldsins:

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
19:00 Leiknir R.-Afturelding (Egilshöll)
19:15 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
19:00 Fylkir-Víkingur (Árbærinn)
Athugasemdir
banner
banner