28.04.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Arsenal kaupir Persie (Staðfest)




Arsenal gengu í morgun frá kaupum á Hollendingnum Robin van Persie. Gerður var langur samningur við leikmanninn en kaupverð er talið 3 milljónir punda. Arsene Wenger stjóri félagsins var ánægður með samninginn en hann sagði: ,,Robin er frábær ungur hæfileikadrengur og frábær kaup fyrir félagið. Hann er með frábæran vinstri fót og gefur frábærar sendingar og hefur framúrskarandi sýn á leikinn. Hann getur spilað sem framherji eða á kantinum."
Talið er að samnigurinn hafi verið til fjögurra ára en leikmaðurinn er 20 ára gamall. Hann sagði: ,,Ég er hæstánægður með að ganga til liðs við lið eins og Arsenal, þetta er draumur að rætast."
