Dean Smith, knattspyrnustjóri Aston Villa, syrgir föður sinn Ron í dag eftir að hann lést á spítala eftir mánaðarlanga baráttu við kórónuveiruna.
Hinn 79 ára gamli Ron Smith barðist við elliglöp og bjó á hjúkrunarheimili. Hann varði síðustu stundunum umvafinn fjölskyldu sinni á spítalanum.
Ron var mikill stuðningsmaður Aston Villa og ársmiðahafi. Hann sá félagið vinna Evrópubikarinn 1982.
Rúmlega 37 þúsund manns hafa látist vegna kórónuveirunnar í Bretlandi.
Í síðasta mánuði lést Dolors Sala Carrio, 82 ára móðir Pep Guardiola, vegna veirunnar.
Athugasemdir