Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 12:32
Kári Snorrason
Jón Daði sendur heim af æfingu og var utan hóps
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Selfyssinga þegar liðið mætti Dalvík/Reyni um helgina.
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Selfyssinga þegar liðið mætti Dalvík/Reyni um helgina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Selfoss um síðastliðna helgi þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Dalvík/Reyni í 2. deild.

Fjarvera Jóns Daða var rædd í Harkinu, hlaðvarpi hér á Fótbolta.net, en þar kom fram að hann hefði verið sendur heim af æfingu í vikunni fyrir leikinn og í kjölfarið ekki verið valinn í hópinn.

Selfoss er með ógnarsterkt framherjapar í 2. deildinni í þeim Jóni Daða og Viðari Erni. Sá síðarnefndi sneri til baka um helgina eftir að hafa verið í agabanni í tveimur leikjum þar áður.

„Viðar Örn kemur beint úr agabanni og skorar. Er þá næsti farinn í agabann? Jón Daði var ekki á skýrslu. Samkvæmt okkar heimildum var hann sendur heim af æfingu og í kjölfarið ekki valinn í hópinn,“ kom fram í Harkinu.

Þar var jafnframt velt upp hvort málið væri útkljáð: „Það er spurning hvað verður, hvort þetta hafi verið ‘settlað’ eða ekki. Selfyssinga vegna vonar maður að þetta verði gleymt og grafið fyrir næsta leik,“ sagði jafnframt í þættinum.

Hægt er að hlusta á Harkið í spilaranum hér að neðan og á hlaðvarpsveitum. Unnið er í því að setja þáttinn á Spotify.
Harkið X Ásgeir Frank
Slapp
banner
banner