28.06.04 - 13:51
Gerrard áfram hjá Liverpool (Staðfest)

Steven Gerrard verður áfram hjá sínu ástkæra félagi Liverpool. Hann mun hafa hafnað boði um vikulaun upp á 120.000 pund auk bónusa. Þetta verður tilkynnt á blaðamannafundi sem hefst eftir 10 mínútur.
Þetta bindur kærkominn enda á vangaveltur aðdáenda Liverpool um að fyrirliði og besti leikmaður liðsins hafi verið á leið frá því. Þarna kemur líka í ljós ástæðan fyrir því af hverju Gerrard tjáði sig ekkert um málið, af því að Chelsea bauð honum samning en hann neitaði honum.
Búast má við því að Liverpool komi sterkt til leiks á næsta tímabili enda ætlar Rafael Benítez hinn nýji stjóri liðsins að versla nokkra leikmenn í sdumar og nóg er af orðrómnum um leikmenn. Roberto Ayala, Pablo Aimar, Ruben Baraja, Michael Ballack, Owen Hargreaves, Tomas Rosicky og Rafael van der Vaart eru á þeim langa lista yfir leikmenn sem hafa verið orðaðir við Liverpool.
Auk þess hefur liðið þegar tryggt sér Djibril Cissé frá Auxerre.