Bournemouth hefur sett sig í samband við ítalska félagið Lazio til að spyrjast fyrir um varnarmanninn Mario Gila.
Gila er 24 ára Spánverji sem á tvö ár eftir af samningi sínum við Lazio.
Bournemouth er í leit af nýjum miðverði eftir söluna á Dean Huijsen til Real Madrid og þá sér félagið einnig fram á að missa Illya Zabarnyi í nánustu framtíð. Franska stórveldið PSG er á höttunum eftir honum.
Gila er lykilmaður í liði Lazio en hann kom til félagsins úr röðum Real Madrid.
Lazio vill fá 50 milljónir evra til að selja Mario Gila í sumar og hafnaði 35 milljóna tilboði frá Chelsea fyrr í sumar.
Real Madrid á 50% af endursöluvirði leikmannsins. Lazio gæti því haldið í Gila næstu tvö tímabilin og hleypt honum burt á frjálsri sölu sumarið 2027 ef félaginu berst ekki nægilega hátt tilboð.
Athugasemdir