Óskar Hrafn: Við viljum ekki að hann fari
Auglýsing

Óskar Hrafn - þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn - þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
"Þetta er leikur sem við eigum ekki að tapa" sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR að leik loknum í Keflavík í dag. Keflvíkingar sigruðu KR 3-2 í skemmtilegum leik á HS Orku vellinum í Keflavík þar sem úrslitin réðust með glæsilegu marki Alpha Conteh á 90. mínútu. Óskar Hrafn var til viðtals eftir leik.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 KR
"Ég met frammistöðuna að stærstu leiti feykilega góða þangað til að við komum inn í teiginn hjá þeim. Ég veit ekki hversu mörgum stöðum við klúðrum, hversu mörgum síðustu sendingum við klúðrum, við verðum að gera betur. Ég man ekki eftir leik þar sem við komum okkur í jafnmargar góðar stöður og man heldur ekki eftir leik þar sem við erum jafn kærulausir og berum jafn litla virðingu fyrir stöðunum sem við komum okkur í. Ég tek það jákvætt úr þessum leik að við áttum auðvelt með að koma okkur í góðar stöður, jafnvel þótt það væri á grasi sem er alltaf aðeins öðruvísi heldur en gervigras. Við þurfum að einbeita okkur betur í stöðunum sem við komum okkur í. Þær voru of margar til að gera ekki meira úr þeim. Við fáum ekkert sérstaklega mörg færi miðað við hversu oft við komumst að teignum þeirra í fyrirgjafastöðu, í skotstöðu. Þar verðum við að gera betur. Þegar við komumst yfir þá náum við að halda í okkar sjálfsmynd sem fótboltalið, við náum að spila okkar fótbolta á grasi, aðeins loðinn völlur en ágætur sem slíkur. Þetta er leikur sem við eigum ekki að tapa"
Galdur Guðmundsson kom inná í hálfleik í stað Amin Cosic en það hafa verið sögusagnir um að Amin sé á leið frá KR í glugganum.
"Galdur er búinn að vera frábær á æfingum og er að koma til baka, mér fannst við ekki nýta hann nógu vel í síðari hálfleik en hann var stórhættulegur í þau fáu skipti sem hann fékk boltann, hann á skilið að spila og mun spila meira á næstunni. "
Jason Daði Svanþórsson hefur skrifað undir hjá KR eftir dvöl á Englandi hjá Grimsby Town.
"Ég er mjög ánægður með það. Ég held að hann eigi eftir að reynast okkur mjög vel, ég þekki hann mjög vel, frábær drengur og frábær leikmaður sem mun styrkja þetta lið gríðarlega. "
Guðmundur Andri Tryggvason hefur verið seldur til FH.
"Auðvitað sér maður eftir leikmanni eins og Guðmundi Andra. Það kom tilboð sem við gátum ekki hafnað. Hann hefur ekki spilað eins mikið og hann hefði viljað. Leiðin fyrir hann inn í KR-liðið er aðeins lengri en inn í FH-liðið og hann er á þeim stað að hann þarf að spila og maður skilur hann. Við sjáum alltaf á eftir góðum KR-ingum.
Heyrst hefur að Sveinn Aron Guðjohnsen hafi æft með KR að undanförnu
"Sveinn Aron hefur æft með okkur í um mánuð en ég leyfi mér að efast um að hann verði leikmaður KR þegar glugginn opnar. "
Koma fleiri leikmenn til KR þegar glugginn opnar?
Það verður bara að koma í ljós. Við missum Alexander Rafn til Nordsjælland, Guðmundur Andri farinn til FH, enginn veit hvað gerist með Amin, við viljum ekki að hann fari. Við munum mögulega bæta við okkur leikmanni en það er ekkert sem er í hendi, þetta er allt saman bara í skóginum.
Allt viðtalið við Óskar er í spilaranum hér að ofan