28.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Stefanovic til Portsmouth. (Staðfest)
Portsmouth hefur loksins gengið endanlega frá kaupunum á varnarmanninum Dejan Stefanovic. Búið var að ná samningum við Stefanovic og fyrrverandi lið hans Vitesse Arnhem en atvinnuleyfi kappans var hafnað. Portsmouth áfrýjaði og á föstudaginn var honum gefið atvinnuleyfi. Búið er að ganga frá öllum pappírum og Stefanovic sem kemur frá Serbíu og Svartfjallalandi er orðinn leikmaður Portsmouth.
