Fotbolti.net
15.07.26 - 14:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stór prófíll á leið í KA? - Bróðir fyrrum leikmanns liðsins

Mynd frá 2015. Andre Römer í baráttu við Jose Izquierdo í Evrópuleik Midtjylland og Club Brugge.

Mynd frá 2015. Andre Römer í baráttu við Jose Izquierdo í Evrópuleik Midtjylland og Club Brugge.

Canon

Mynd: EPA

KA hefur fundið mann til að leysa hlutverk Rodri á miðju liðsins en spænski miðjumaðurinn sleit krossband snemma í vor.

„Við erum aðeins að bregðast við því núna með því að fá alvöru mann inn á miðjuna til að hjálpa liðinu þar," sagði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, í samtali við Fótbolta.net í vikunni.

KA ætlar sér að fá inn varnarsinnaðan miðjumann í glugganum og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hann fundinn.

Leikmaðurinn sem Fótbolti.net hefur fengið ábendingar um er Andre Römer sem er yngri bróðir Marcel Römer sem lék með KA á síðasta tímabili.
Meiðsli hjá KA sem er ekki hætt á markaðnum - „Þeir verða komnir fyrir næsta leik"
TENGT EFNI

Meiðsli hjá KA sem er ekki hætt á markaðnum - „Þeir verða komnir fyrir næsta leik"

Andre er 32 ára og hefur allan sinn feril leikið í Danmörku ef frá er talinn tíminn hjá Elfsborg í Svíþjóð á árunum 2021-23.

Andre vann þrisvar sinnum danska meistaratitilinn sem leikmaður Midtjylland og árið 2021 varð hann danskur bikarmeistari með Randers.

Hann er með lausan samning hjá Randers og kæmi því á frjálsri sölu. Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 23 leikjum í dönsku úrvalsdeildinni og byrjaði átta þeirra. Randers endaði í 10. sæti deildarinnar.
Marcel Römer, eldri bróðir Andre, lék með KA á síðasta tímabili.

Marcel Römer, eldri bróðir Andre, lék með KA á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.