28.08.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Forssell til Birmingham. (Staðfest)




Mikael Forssell framherji Chelsea gekk í dag til liðs við Birmingham City á fjögurra mánaða lánssamningi. Lánið gæti orðið framlengt út tímabilið ef báðir aðilar ná samkomulagi um það í lok fyrri samningsins. Claudio Ranieri á nóg af framherjum eftir kaupin á Hernan Crespo og Adrian Mutu en fyrir voru Eiður "okkar" Smári Guðjohnsen og Jimmy Floyd Hasselbaink sem munu berjast um stöður við nýju leikmennina. Þá hefur Carlton Cole verið lánaður til Charlton.
